Synt í blíðunni

Synt í Litlu laxá á Flúðum.
Synt í Litlu laxá á Flúðum. Sunnlendingur.is

Á annað þúsund gestir gistu í rjómablíðu á tjaldsvæðinu á Flúðum um helgina og að sögn staðarhaldara er þetta lang mesti fjöldinn á tjaldsvæðinu það sem af er sumri.

Svo mikil var blíðan á laugardaginn að gestir og gangandi syntu sér til kælingar í Litlu laxá en vatnshitinn um miðjan dag var ámóta og sjávarhitinn á góðri sólarströnd á Spáni í Júlí, að sögn Sunnlendings.is.

Um helgina var strandblakvöllur tekinn í notkun um helgina á tjaldstæði Trogs við Litlu Laxá og var af því tilefni haldið blakmót. Tóku tuttugu lið þátt og var viðstöddum boðið upp á grillaðar pylsur og gos.

Sunnlendingur.is

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert