Fullorðnir menn með öflugar tangir

Garðar Þorbjörnsson eigandi Urðar og grjóts segir líklegast að einhverjir anarkistar standi að baki skemmdarverkum í Öskjuhlíð í nótt. Hann segir engin börn hafa verið að verki heldur fullorðnir menn með öflugar tangir. Slík verkfæri liggi ekki á glámbekk þar sem einhver vegfarandi geti gripið til þeirra.

Vélarrúm vinnuvéla voru fyllt af sandi og grjóti, klippt á olíuleiðslur og tölvubúnaður eyðilagður. Garðar segir að allt hafi verið  í lagi um tíu leytið í gærkvöldi og mennirnir hafi líklega verið á ferðinni í nótt. Hann segir að líklega séu skemmdarvargarnir að agnúast út í eitthvað en hann viti ekki hvaða erindi það eigi við fyrirtækið Urð og grjót eða háskólanema.

 
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert