Skíðasvæðið í Hlíðarfjalli opnað á laugardag

Frá Hlíðarfjalli.
Frá Hlíðarfjalli. mbl.is/Skapti


Skíðavertíðin í Hlíðarfjalli ofan Akureyrar hefst næstkomandi laugardag. Guðmundur Karl Jónsson, forstöðumaður í Hlíðarfjalli, segir að snjóframleiðslan hafi gengið vonum framar síðustu daga og að auki hafi borist drjúg aðstoð að ofan því snjóað hefur nokkuð hressilega í Fjallinu. Um helgina verður Fjarkinn opinn, Andrésarbrekka og Töfrateppið fyrir yngsta skíðafólkið.

Opið verður frá kl. 10-16 á laugardag og sunnudag.

Spáð er hörkufrosti næstu dægrin og því ætti að vera hægt að framleiða vel af snjó, auk þess sem honum kyngir líklega niður af hinum ofan, að því er segir í tilkynningu.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert