Jón Gnarr, grínari með meiru, hefur verið valinn leikskáld Borgarleikhússins, úr stórum hópi umsækjenda og mun starfa í leikhúsinu við ritstörf næsta árið.
Stefnt er að því að Jón riti eitt eða fleiri leikverk á tímabilinu fyrir leikhúsið en hann tekur við kyndlinum af Auði Jónsdóttur, sem lýkur nú árssamningi sínum frá í fyrra. Leikrit hennar verður sett upp á næsta leikári.
Sem kunnugt er hyggur Jón á framboð í komandi sveitastjórnarkosningum. Hann hefur þó engar áhyggjur af því að starfið í leikhúsinu stangist á við fyrirhugaðan pólítískan feril hans, nema síður sé!