Mikil virkni í gosinu

Enn er mikil virkni í gosinu en sprungan er enn svipuð og hún var upphaflega, með fimm eða sex megin eldstrókum. Hraunið sem kemur úr sprungunni hefur runnið til norðausturs.

Snemma í morgun var töluverður kraftur í gosinu en um miðjan morgun var rólegt yfir svæðinu. Þegar við náðum svo tali af almannavarnarnefndinni skömmu eftir fund sem þeir áttu með ríkislögreglustjóra á Hellu í morgun hafði virknin aukist á ný.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert