Vanræksla ráðherra

Geir H. Haarde og Björgvin G. Sigurðsson sýndu báðir af …
Geir H. Haarde og Björgvin G. Sigurðsson sýndu báðir af sér vanrækslu í starfi samkvæmt niðurstöðu rannsóknarnefndar Alþingis mbl.is/Kristinn Ingvarsson

Geir H. Haarde, þáverandi forsætisráðherra, Árni M. Mathiesen, fjármálaráðherra og Björgvin G. Sigurðsson, viðskiptaráðherra sýndu af sér vanrækslu í starfi og það sama gildir um forstjóra Fjármálaeftirlitsins, Jónas Fr. Jónsson. Þetta er niðurstaða rannsóknarnefndar Alþingis.

Jafnframt er það niðurstaða rannsóknarnefndar að Davíð Oddsson, Ingimundur Friðriksson og Eiríkur Guðnason, í bankastjórn Seðlabankans, hafi einnig sýnt af sér vanrækslu í starfi. Eins er stjórn Seðlabanka Íslands á þessum tíma sek um að hafa sýnt af sér vanrækslu í starfi.

Í skýrslu vinnuhóps sem hafði það hlutverk að svara því hvort skýringar á falli íslensku bankanna og tengdum efnahagsáföllum mætti að einhverju leyti finna í starfsháttum og siðferði, kemur fram að víða var pottur brotinn í framkvæmdasýslunni. Vilhjálmur Árnason, Salvör Nordal og Kristín Ástgeirsdóttir sátu í vinnuhópnum.

Fjölmiðlar stóðu sig ekki í umfjöllun um fjármálalífið og allt of mikið var byggt á tilkynningum frá bönkunum í stað sjálfstæðrar rannsóknarvinnu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert