Efnahagsdeild ríkislögreglustjóra rannsakar nú þriggja milljarða króna millifærslu FL Group á reikning hjá Kaupþingi í Lúxemborg sem stórfellt auðgunarbrot.
Þetta staðfestir Helgi Magnús Gunnarsson, saksóknari efnahagsbrota í samtali við Morgunblaðið. Hann segir jafnframt að efnahagsbrotadeildin vinni nú að því að afla gagna frá Lúxemborg um málið.
„Spurningin snýst um hvort þetta fé hafi legið á reikningi FL Group í Lúxemborg eða verið notað til einhverra annarra hluta,“ segir Helgi.
Helgi Magnús segir að rannsókn á málinu hafi hafist fyrir nokkru síðan, en á síðasta ári voru framkvæmdar húsleitir í húsnæði tengdu Hannesi Smárasyni.Sjá ítarlega umfjöllun um þetta mál í Morgunblaðinu í dag.