Hafnarfjarðarbær hefur útnefnt Andrés Þór Gunnlaugsson gítarleikara sem bæjarlistamann ársins 2014. Það var gert við hátíðlega athöfn í Hafnarborg í dag.
Ennfremur voru veittir tveir hvatningarstyrkir til listamanna sem lengi hafa unnið ötullega að listsköpun sinni og þá hlutu myndlistarmennirnir Kristbergur Pétursson og Ólöf Björg Björnsdóttir. Bæjarlistamaður hlýtur eina milljón króna í styrk og hvatningarstyrkir eru 250 þúsund krónur hvor.
Fram kemur í tilkynningu frá Hafnarfjarðarbæ að við sama tækifæri hafi menningar- og ferðamálanefnd bæjarins veitt 24 styrki til menningarstarfsemi og viðburða. Samtals að upphæð 5 milljónir króna. Nánar er fjallað um styrkveitingarnar á vefsíðu Hafnarfjarðarbæjar.