Fangelsið Sogni tveggja ára

Starfsfólk fangelsisins að Sogni ásamt Margréti Frímannsdóttur forstöðumanni.
Starfsfólk fangelsisins að Sogni ásamt Margréti Frímannsdóttur forstöðumanni.

Rekstur Fangelsisins Sogni hófst 18. apríl 2012 og hefur fangelsið því verið starfrækt í tvö ár. Á Sogni er pláss fyrir tuttugu fanga og hafa um 60-70% þeirra verið í námi, bæði á framhaldsskólastigi og háskólastigi. Miðað er við að vistun í Fangelsinu Sogni geti að hámarki verið tvö ár.

Á vefsvæði Fangelsismálastofnunar er það rifjað upp að opið úrræði á vegum Fangelsismálastofnunar var flutt frá Fangelsinu Bitru í Flóahreppi að Sogni í Ölfusi í apríl 2012 en fyrr um veturinn hafði Réttargeðdeildin sem var staðsett á Sogni verið flutt til Reykjavíkur. Fangelsið Sogni var svo vígt formlega 1. júní 2012.

Þar segir að við val á því hvaða fangar vistast í opnum fangelsum sé meðal annars horft til aldurs þeirra, hvort þeir eru taldir hæfir til vistunar í opnu úrræði, að þeir séu að búa sig undir að ljúka refsivist, séu ekki háðir vanabindandi lyfjum, að þeir stundi vinnu eða nám og séu reiðubúnir til að taka virkan þátt í starfsemi fangelsisins.

Þá segir að aðstaða til náms sé góð fjarfundarbúnaður er til staðar vegna fjarnáms við háskóla og kennarar frá Fjölbrautarskóla Suðurlands, FSu, koma þrjá morgna og einn eftirmiðdag í viku en auk þess koma kennslustjóri og námsráðgjafi einu sinni í viku.

Á Sogni starfa tveir fangar í eldhúsi við matseld, fimm fangar sinna ræstingu á húsnæði, þar að auki sinna fangar hænsnum og störfum í matjurtagarði, gróðurhúsi og bleikjueldi yfir sumartímann ásamt viðhaldi á fasteignum og lóð. Fangar hafa einnig sinnt verkefnum, á vegum fangelsisins, utan þess í nágrenninu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka