Árið 2011 voru 8.500 refir veiddir á landinu. Refir eru veiddir um allt land, þar á meðal í Reykjavík, þar sem 20 refir veiddust árið 2010.
Núna eru uppi deilur milli sveitarfélaga og ríkisins um drög að samningi um niðurgreiðslur vegna refaveiða.
Í umfjöllun um mál þetta í Morgunblaðinu í dag segir Kristján Andri Guðjónsson í bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar samningsdrögin vera hefndargjöf.