Eldur kom upp í kjallaraíbúð í Hafnarfirði um þrjúleytið. Reykkafarar slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins hafa verið sendir inn í íbúðina en talið var, þegar tilkynning barst slökkviliði, að hundar væru inni í húsinu.
Ekki er talið að um stórbruna sé að ræða en talsverðan reyk leggur af íbúðinni að sögn slökkviliðsins.