Tilkynnt var um reyk í Fjölbrautarskólanum í Garðabæ nú rétt í þessu.
Allt tiltækt slökkvilið höfuðborgarsvæðisins er á leið á vettvang.
Uppfært kl. 23.22
Samkvæmt upplýsingum frá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins er eldur í blaðagámi fyrir utan húsnæði skólans og er hann bundinn við gáminn. Ekki er talin hætta á að eldurinn breiðist út í húsið.
Slökkviliðsmenn eru nú á leið inn í húsið til að fullvissa sig um að ekki sé eldur í húsinu.
Uppfært kl. 23.39
Búið er slökkva eldinn. Unnið er að því að reykræsta húsið.