Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði ökumann sem grunaður er um akstur undir áhrifum fíkniefna. Hann var látinn laus að lokinni blóðsýnatöku en hann reyndist einnig vera sviptur ökuréttindum.
Að öðru leyti var kvöld- og næturvaktin róleg hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.