Ökumaður missti stjórn á bifreið sinni í mikilli hálku í Þrengslum á tíunda tímanum í morgun. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Selfossi er mikil hálka á þessum slóðum og því fyllsta ástæða fyrir ökumenn að fara varlega.
Sjúkrabíll var sendur á staðinn en ökumaðurinn slapp án teljandi meiðsla. Bifreiðin er illa farin eftir veltuna.