Varðskipið Þór hélt á föstudag úr höfn í Reykjavík en skipið verður næstu vikur við eftirlit innan íslenska hafsvæðisins, að því er fram kemur á vef LHG.
Í gær skipti áhöfn varðskipsins um öldumælisdufl út af Garðskaga og að þá verður áhöfnin, samhliða eftirliti, við ýmsa þjálfun og æfingar, meðal annars með þyrlu Landhelgisgæslunnar.