„Við erum sátt, náðum að koma hestinum vel á framfæri og fengum jákvæð viðbrögð.“
Þetta segir Ólafur Ólafsson, en fyrirtæki hans og Ingibjargar Kristjánsdóttur hefur staðið fyrir kynningu á íslenska hestinum í Frakklandi undanfarna 18 mánuði.
Þess vegna hafa meðal annars fleiri Frakkar komið til Íslands og sumir í hestaferðir, að því er fram kemur í umfjöllun um mál þetta í Morgunblaðinu í dag.