Vegagerðin varar ökumenn við að vera á ferð á suðuausturlandi. Þar er hálka, krapi, snjókoma og éljagangur og mjög víða. Flughált og mjög erfitt færi frá Eyjafjöllum austur að Fáskrúðsfirði og eru vegfarendur beðnir um að vera ekki á þessum slóðum að nauðsynjalausu, því þar er ekkert ferðaveður.
Á Hellisheiði, Þrengslum og Sandskeiði eru hálkublettir. Það er hálka og snjóþekja á Suðurlandi en hálkublettir og hálka á Suðvesturlandi.
Á Vesturlandi er flughált í Borgarfirðinum, Hvalfirði og á Holtavörðuheiði en hálka og snjóþekja og sumstaðar skafrenningur. Ófært er á Fróðárheiði.
Á Vestfjörðum er hálka eða snjóþekja á flestum leiðum. Þæfingsfærð og skafrenningur á Steingrímsfjarðarheiði en hálka á Þröskuldum. Flughálka er frá Patreksfirði að Kettshálsi. Ófært og lokað er á Hálfdáni, Mikladal og Kleifaheiði.
Snjóþekja eða hálka er á Norður- og Austurlandi og sumstaðar éljar. Snjóþekja og skafrenningur er á Öxnadalsheiði. Flughálka er frá Blönduósi að Skagaströnd.
Oddskarð og Fjarðarheiði er Þungfært . Vatnskarð eystra ófært með óveðri.