Slökkvilið var kallað út í kvöld vegna reyks á herbergi í Skipholti.
Þegar komið var á staðinn varð ljóst að um minniháttar aðgerð væri að ræða en reykurinn stafaði frá handklæði sem lagt hafði verið yfir lampa.
Handklæðið var fjarlægt af lampanum og herbergið reykræst.