Nýlega voru birtar niðurstöður vísindamanna í Bretlandi um meðalstærð og ummál getnaðarlima. Miklar umræður mynduðust í kjölfarið víða um heim og hafa ýmsir tjáð sig um typpastærðir. Mbl.is fór á stúfana og kannaði hvað nemendur Háskóla Íslands teldu hinn meðallanga reður vera stóran.
Vísindamennirnir tóku saman mælingar á yfir 15 þúsund getnaðarlimum, en tilgangur rannsóknarinnar var m.a. að safna gögnum til viðmiðunar þegar menn kvarta yfir litlum getnaðarlim.
Niðurstöður voru þær að meðallengd getnaðarlima (eins og þeir hanga) er 9,16 sm, en 13,24 sm þegar teygt hefur verið úr þeim. Þá er meðallengd í fullri reisn 13,12 sm. Meðal ummál getnaðarlima (eins og þeir hanga) er 9,31 sm, en 11,66 í fullri reisn.
Viðmælendur mbl.is giskuðu á að meðallengdin væri allt frá 10 sm upp í 20 sm, svo ljóst er að ekki eru allir sammála um niðurstöðurnar. En skiptir stærðin máli?
Frétt mbl.is: Meðallengd reðursins liggur fyrir