Lögregla og björgunarsveitir hafa staðið í ströngu við að aðstoða ferðamenn á Fjarðarheiði. Að sögn lögreglu er slæm færð víða á Austurlandi. Eitthvað hefur verið um umferðaróhöpp en engin slys á fólki.
Á Austurlandi er víða hálka eða snjóþekja á vegum og skafrenningur og blint á fjallvegum. Þungfært og skafrenningur er nú á Fjarðarheiði og á Vatnsskarði eystra. Á Fagradal er hálka og einnig skafrenningur og snjóþekja á Oddskarði. Hálka eða hálkublettir eru með suðausturströndinni.
Búast má við norðanátt og snjókomu og skafrenningi um norðaustan og austanvert landið í dag og fram á kvöld.
Hálkublettir eru á Hellisheiði og í Þrengslum en annars er nokkur hálka eða hálkublettir á Suðurlandi, einkum útvegum og sumstaðar er jafnvel þæfingur eða þungfært á sveitavegum. Flughált er á kafla undir Eyjafjöllum.
Á Vesturlandi er víða hálka eða hálkublettir á vegum en snjóþekja á Laxárdalsheiði. Hálka og skafrenningur er á Holtavörðuheiði.
Hálka eða snjóþekja er á vegum á Vestfjörðum. Snjóþekja og skafrenningur er á Steingrímsfjarðarheiði og Þröskuldum.
Það er víðast hvar hálka eða snjóþekja á Norðurlandi og éljagangur nokkuð víða, einkum á Norðausturlandi. Skafrenningur er á Vatnsskarði og á fjallvegum fyrir austan Eyjafjörð. Stórhríð er nú á og í nágrenni Húsavíkur og á Tjörnesi en þar er orðið þungfært. Þæfingsfærð er á Hólasandi.