„Þetta er besti dagur vetrarins, það er ekkert vafamál,“ segir Einar Bjarnason, rekstrarstjóri Bláfjalla, en veður hefur leikið við skíðaiðkendur í Bláfjöllum í dag og þykir færið einstaklega gott.
Að sögn Einars situr fólk um allt svæðið, borðar nestið sitt og sólar sig, á milli þess sem það skíðar í fjallinu. „Þetta er bara meiriháttar og algjörlega geggjað,“ segir hann.
Þá segir hann færið „alveg upp á 120“ og allt eins og best er á kosið. Örlítill andvari sé í lofti, en varla megi sjá fánana flökta.
Opið er í fjallinu til klukkan 21 í kvöld, en að sögn Einars þarf fólk ekki að hafa skíðakunnáttu til að njóta blíðunnar. „Það þarf bara að koma og njóta þess að vera hérna úti í þessu dásamlega veðri.“
Páskafrí eru hafin í grunnskólum á höfuðborgarsvæðinu og má því reikna með að einhverjir nýti fríið í að skella sér á skíði.