Leiðindaveður hefur verið á Húsavík í dag. Eftir því sem leið á daginn bætti í vind og þá hefur einnig snjóað töluvert.
Færð er farin að spillast innanbæjar og hafa margir ökumenn lent í vandræðum, þar með talið lögregla og læknir sem festu bíla sína. Björgunarsveitin Garðar er á ferðinni og aðstoðar vegfarendur.
Tuttugu bílar sátu fastir á Fjarðarheiði eftir hádegi í dag. Loka þurfti heiðinni og veginum um Fagradal um stund vegna ófærðar. Björgunarsveit og ruðningstæki komu ökumönnum til hjálpar en aðstoða þurfti ökumenn fólksbíla og flutningabíla sem voru á leið úr Norrænu.
Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu var um að ræða hvell sem gekk hratt yfir og er nú búið að losa bílana af heiðinni.
Hálkublettir eru í Þrengslum en annars er nokkur hálka eða hálkublettir á Suðurlandi, einkum útvegum.
Á Vesturlandi er víða hálka eða hálkublettir á vegum.
Hálka er á fjallvegum á Vestfjörðum en á láglendi eru hálkublettir í Ísafjarðardjúpi en hálka á sunnanverðum Vestfjörðum.
Á Norðurlandi er víða ófært, snjóþekja og kominn éljagangur, snjókoma og stórhríð og er að bæta í vind skv veðurspá. Ófært er um Víkurskarð, Mývatns- og Möðrudalsöræfi, Jökuldal, Vopnafjarðrheiði, Hálsa og Hófaskarð. Mjög slæmt skyggni er á Svalbarðsströndinni og stórhrið. Þæfingsfærð og skafrenningur er á Tjörnesi. Þæfingsfærð er á Grenivíkurvegi og Dettifossvegi. Siglufjarðarvegurinn er lokaður vegna snjóflóðs þar til hlutir skýrast og búið sé að hreinsa. Snjóþekja er í Dalsmynni.
Á Austurlandi er hálka eða snjóþekja á vegum. Ófært er um Vatnsskarð eystra, Oddskarð og Fjarðarheiði. Þæfingsfærð er á Hróarstunguvegi og á Hlíðarvegi. Hálka eða hálkublettir með suðausturströndinni.