2 milljónir í neyðaraðstoð í Nepal

AFP

SOS Barnaþorpin á Íslandi hafa ákveðið að senda að lágmarki tvær milljónir króna til neyðaraðstoðar í Nepal í kjölfar jarðskjálfta þar upp á 7,9 í morgun. Hátt í þúsund manna fórust í öflugum skjálftanum, margir í höfuðborginni Katmandú og nágrenni hennar. Enn fleiri hafa misst heimili sín.

Starfsfólk SOS í Nepal er nú að undirbúa umfangsmikla neyðaraðstoð, m.a. að taka við og liðsinna börnum sem misst hafa foreldra sína í skjálftanum eða orðið viðskila við sína nánustu. Unnið verður að því í samstarfi við yfirvöld og önnur samtök að sameina fjölskyldur og finna hentugustu úrræðin fyrir þau börn sem orðið hafa munaðarlaus samkvæmt fréttatilkynningu frá SOS Barnaþorpunum á Íslandi.

Þá kemur jafnframt fram að opnuð verði barnvæn svæði þar sem börn geta komið og leikið sér, fengið áfallahjálp, stundað nám og fleira fjarri þeim áhyggjum, sorg og ringulreið sem geta einkennt daglegt líf í kjölfar hamfara.

Níu SOS Barnaþorp eru í Nepal og hafa samtökin sinnt þar barnahjálparstarfi í yfir 40 ár. Þá reka SOS einn leikskóla í landinu, sjö grunnskóla, þrjá verknámsskóla og eina heilsugæslustöð. Auk þess hjálpa samtökin víðs vegar um landið þúsundum fátækra barnafjölskyldna til fjárhagslegs sjálfstæðis með Fjölskyldueflingu SOS. Sú aðstoð mun að líkindum aukast nú í kjölfar skjálftans.

Samkvæmt fréttum af vettvangi eru öll börn í barnaþorpum óhult og það sama á við um allt starfsfólk samtakanna í Nepal. Um 160 Íslendingar eiga styrktarbörn í barnaþorpum í Nepal og  fylgjast með uppvexti þeirra. Námu framlög þeirra til framfærslu barnanna 7,4 milljónum króna á síðasta ári.

Leita samtökin nú til almennings eftir stuðningi við neyðaraðstoðina. Hægt er að millifæra framlag á reikning 334-26-52075, kt.500289-2529 með skýringunni: Nepal.

Þá er hægt að hringja í síma 907 1001 (1.000 krónur); og í síma 907 1002 (2.000 krónur).

Frétt mbl.is: Mann­skæður jarðskjálfti í Nepal

Frétt mbl.is: Vil­borg og Ingólf­ur óhult

Frétt mbl.is: Íslensku ung­menn­in í Nepal óhult

Frétt mbl.is: Minnst tíu látnir á Everest

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert