Tvær bílveltur urðu í nágrenni við Húsavík seinnipartinn í gær en færðin var allslæm.
Að sögn lögreglu á svæðinu voru tveir úr öðrum bílnum og einn úr hinum færðir á sjúkrahús á Húsavík en allir fengu að fara heim að lokinni skoðun. Önnur bílveltan varð í Reykjadal og hin sunnan við Húsavík. Báðir bílar eru talsvert skemmdir.