Framkvæmdir um helgina við lagningu á nýrri vatnslögn þvert undir Laugaveg við Kringlumýrarbraut voru umfangsmeiri en hægt var að sjá fyrir. Því verður að framlengja tímabundna lokun á umferð um Laugaveg við gatnamótin um einn sólarhring. Opnað verður fyrir umferð um Laugaveg að nýju á þriðjudag kl. 7, segir í frétt frá Reykjavíkurborg.
Kringlumýrarbraut verður opin, en ekki verður hægt að beygja inn á Laugaveg. Bílaumferð niður Suðurlandsbraut þarf einnig að fara um hjáleiðir. Strætó mun nota hjáleið um Borgartún og Nóatún og hafa upplýsingar verið settar upp á þeim biðstöðvum sem falla tímabundið úr þjónustu. Gangandi og hjólandi komast stíginn meðfram Laugavegi.
Ástæður fyrir seinkun framkvæmda um helgina eru að mikil mold og stórgrýti reyndist vera í undirfyllingu götunnar en það kallar á meiri jarðvegsskipti. Beðist er velvirðingar á mögulegum töfum í umferðinni. Vegfarendur eru hvattir til að sýna aðgát við framkvæmdasvæðið og á hjáleiðum.