Vakin er athygli á því að víða er vetrarfærð á fjallvegum á Vestfjörðum og eru vegfarendur beðnir að sýna sérstaka aðgát, að því er segir í tilkynningu frá Vegagerðinni
Vegir eru greiðfærir á Suðurlandi og að mestu á Vesturlandi en hálkublettir eru á Bröttubrekku.
Á Vestfjörðum er hálka er á Steingrímsfjarðarheiði og hálka og skafrenningur á Klettshálsi. Hálka er einnig á Hrafnseyrarheiði en hálkublettir á Dynjandisheiði. Á Ströndum er þungfært frá Bjarnarfirði og norður í Reykjarfjörð og krapi þaðan og í Gjögur. Einnig er krapi á Bjarnarfjarðarhálsi.
Það er að mestu greiðfært á Norðurlandi en þó eru hálkublettir og él á Þverárfjalli.
Greiðfært er á Austurlandi og Suðausturlandi.
Hálendisvegir eru flestir lokaðir vegna hættu á skemmdum bæði á vegum og náttúru.