Í Ráðhúsi Reykjavíkur stendur yfir sýning á verkum pólsku listakonunnar Ewu Rossano, sem er vel þekkt í heimalandinu. Sýningin er hluti af verkefninu Gegn útilokun frá menningu, en markmið þess er að miðla listaverkum og viðburðum til sjónskertra en einnig á milli Íslands og Póllands.
Á dögunum var svo haldin leiksýning í Gaflaraleikhúsinu þar sem ein þekktasta gamanleikkona Pólverja flutti einleik sem var textaður á skjá við sviðið en einnig var hægt að hlusta á íslenska þýðingu í heyrnatólum sem var unnin í samstarfi við Blindrafélagið.
mbl.is kom við í Ráðhúsinu og ræddi við Mörtu Mögdulenu, stjórnanda verkefnisins.