Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað út fyrir skömmu vegna mikils heitavatnsleka í húsnæði Ölgerðarinnar við Grjótháls.
Að sögn varðstjóra í slökkviliði höfuðborgarsvæðisins er vatn yfir að minnsta kosti 100 fm svæði í húsnæði Ölgerðarinnar en ekki er vitað á þessari stundu hversu mikið tjónið er.