Bætt hefur verið úr annmörkum sem lúta að stuðningi ríkisins við atvinnu- og byggðaþróun að því er fram kemur í fréttatilkynningu sem Ríkisendurskoðun sendi frá sér í kvöld.
Með lögum nr. 69/2015 um byggðaáætlun og sóknaráætlanir hafi verið skerpt á markmiðum ríkisins er snúa að stuðningi við atvinnu og byggðaþróun, auk þess sem skýrar sé kveðið á um samráð ráðuneyta á sviði byggðamála innan hvers landshluta, sem og milli stjórnsýslustiga.
„Ríkisendurskoðun ítrekar ekki ábendingar sínar til atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytis frá árinu 2013,“ segir í tilkynningunni. Jafnframt fái sveitarstjórnir aukna ábyrgð á sviði byggða- og samfélagsþróunar og þá skuli ráðherra byggðamála leggja fyrir Alþingi tillögu til þingsályktunar um stefnumótandi byggðaáætlun til sjö ára í senn.