Fram fara almennar stjórnmálaumræður á Alþingi í kvöld, eða svonefndar eldhúsdagsumræður, þar sem fulltrúar stjórnmálaflokkanna flytja ræður um stöðuna í stjórnmálum landsins. Umræðurnar skiptast í þrjár umferðir og hefur hver þingflokkur tíu mínútur í fyrstu umferð, sex mínútur í annarri og sömuleiðis sex mínútur í þeirri síðustu.
Röð flokkanna verður í öllum umferðum þessi: Samfylkingin, Sjálfstæðisflokkur, Vinstri hreyfingin – grænt framboð, Framsóknarflokkur, Björt framtíð, Píratar
Ræðumenn flokkanna verða:
Fyrir Samfylkinguna tala Árni Páll Árnason, 4. þm. Suðvesturkjördæmis, í fyrstu umferð, í annarri Katrín Júlíusdóttir, 11. þm. Suðvesturkjördæmis, og í þeirri þriðju Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir , 5. þm. Norðvesturkjördæmis.
Ræðumenn Sjálfstæðisflokksins eru Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, í fyrstu umferð, Elín Hirst, 13. þm. Suðvesturkjördæmis, í annarri umferð, en í þriðju umferð Vilhjálmur Árnason, 9. þm. Suðurkjördæmis.
Fyrir Vinstri hreyfinguna – grænt framboð tala Katrín Jakobsdóttir, 3. þm. Reykjavíkurkjördæmis norður, í fyrstu umferð, Ögmundur Jónasson, 8. þm. Suðvesturkjördæmis, í annarri, en í þriðju umferð Lilja Rafney Magnúsdóttir, 8. þm. Norðvesturkjördæmis.
Ræðumenn Framsóknarflokksins eru í fyrstu umferð Sigurður Ingi Jóhannsson forsætisráðherra, Lilja Alfreðsdóttir utanríkisráðherra, í annarri, og Elsa Lára Arnardóttir, 6. þm. Norðvesturkjördæmis, í þriðju umferð.
Fyrir Bjarta framtíð tala í fyrstu umferð Óttarr Proppé, 11. þm. Reykjavíkurkjördæmis suður, í annarri Brynhildur Pétursdóttir, 10. þm. Norðausturkjördæmis, en í þriðju umferð Róbert Marshall, 6. þm. Reykjavíkurkjördæmis suður.
Ræðumenn Pírata eru Helgi Hrafn Gunnarsson, 10. þm. Reykjavíkurkjördæmis norður, í fyrstu umferð, Ásta Guðrún Helgadóttir, 10. þm. Reykjavíkurkjördæmis suður, í annarri, en í þriðju umferð Birgitta Jónsdóttir, 12. þm. Suðvesturkjördæmis.