Karlmaður á fertugsaldri lést í umferðarslysi á Þingvallavegi við Leirvogsá, skammt frá Laxnesi, síðdegis í gær, en tilkynning um slysið barst lögreglu kl. 17:08.
Maðurinn féll af bifhjóli sem hann ók áleiðis til Þingvalla, að því er segir í tilkynningu frá lögreglu.
Hann var fluttur með sjúkrabifreið á slysadeild Landspítala í Fossvogi þar sem hann var úrskurðaður látinn. Tildrög slyssins eru til rannsóknar hjá lögreglu.
Þingvallavegur lokaður eftir mótorhjólaslys
Uppfært 15:02
Í fyrri tilkynningu lögreglu var ranglega farið með akstursstefnu bifhjólsins. Lögreglan biðst afsökunar á mistökunum.