Leit stendur yfir á sjó í Fossvoginum og úr lofti. Einn af bátum Landhelgisgæslunnar er við leit í voginum og þyrla sveimar yfir höfuðborgarsvæðinu.
Ekki hafa fengist nánari upplýsingar um málið.
Uppfært kl. 14.30
Karlmaður sem leitað var að í Fossvoginum í dag fannst heill á húfi skömmu eftir að leit hófst. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu staðfestir þetta í samtali við mbl.is.