Hvolpasýning Hundaræktarfélags Íslands fór fram á föstudaginn á túninu við Reiðhöllina í Víðidal. Keppt var í fjórum sýningarhringjum en alls voru 124 hvolpar skráðir til keppni.
Hundaáhugamenn fjölmenntu í Reiðhöllina til að berja hvolpana augum og fylgjast með stigakeppninni.
Þá tóku nítján ungmenni þátt í keppni ungra sýnenda fyrr um kvöldið.
Ljósmyndari mbl.is leit við og tók meðfylgjandi myndir.