Verulega hefur dregið úr umferð um Selfoss, en þegar mest var náði bílaröðin frá Kögunarhóli og inn á Selfoss. Að sögn lögreglunnar á Selfossi er enn mikil umferð í gegnum bæinn. Bílaröðin byrjar þó ekki fyrr en við húsakynni Toyota á Selfossi, þannig að verulega hefur fækkað í bílalestinni.
Lögregla segir sjaldan hafa verið jafnmikla umferð í gegnum bæinn og í dag. Hún hafi þó gengið stórslysalaust fyrir sig og ökumenn verið til fyrirmyndar.
Lögregla gerir ráð fyrir að mesti umferðarkúfurinn sé nú farinn hjá, enda séu öll tjaldstæði í Árnessýslu full þar sem um 60.000 manns séu í sýslunni þessa verslunarmannahelgi.