Nova stendur í dag fyrir tónleikum á 900 Grillhúsi í Vestmannaeyjum þar sem tónlistarmennirnir Gísli Pálmi, Aron Can, DJ Margeir, Högni Egilsson og Sísí Ey munu skemmta þjóðhátíðargestum. Ingó Veðurguð hélt tónleika á sama stað í gær og má búast við því að fjörið haldi áfram í dag.
Tónleikarnir verða til klukkan 18 í kvöld og má fylgjast með þeim í beinni útsendingu á Facebook-síðu Nova.