Tvær líkamsárásir í borginni

Nokkur erill var hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í nótt og var m.a. tilkynnt um tvær líkamsárásir í miðbænum. Um kl. 2.35 var tilkynnt um líkamsárás í Bankastræti. Þar var manni hrint í götuna og hlaut hann sár á enni. Hann var fluttur á slysadeild til aðhlynningar.

Þá var ung kona handtekin við veitingahús í Hafnarstræti um kl. 4.30, grunuð um líkamsárás. Konan er sögð hafa slegið mann í höfuðið með flösku. Maðurinn hugðist fara á slysadeild. Konan var ölvuð og vistuð í fangageymslu.

Lögregla hafði einnig afskipti af manni í annarlegu ástandi í Hafnarstræti um kl. 3.45. Hann reyndist með ætluð fíkniefni í fórum sínum og neitaði að veita lögreglu persónuupplýsingar á vettvangi. Maðurinn var vistaður í fangageymslu þar sem hann verður þar til hægt verður að ræða við hann.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert