Rúmlega tvítugur karlmaður, sem ók á 171 km hraða á Reykjanesbraut um helgina, reyndist vera með meint kannabis í hanskahólfi bíls síns. Jafnframt fundu lögreglumenn á Suðurnesjum 10 lítra fötu í bifreiðinni. Var fatan full af meintum spíra.
Ökumaðurinn viðurkenndi eign sína á efnum og vökva og jafnframt á vog og kannabismyljara sem einnig fundust í bifreiðinni. Maðurinn var ekki með ökuskírteini meðferðis. Hann var sviptur ökuréttindum til bráðabirgða vegna hraðakstursins. Grunur leikur á að hann hafi verið undir áhrifum vímuefna undur stýri.
Fimm ökumenn hafa, auk þessa ofangreinda verið kærðir fyrir of hraðan akstur á undanförnum dögum og tveir til viðbótar fyrir ölvunarakstur.