Ökuferðin endaði á ljósastaur

mbl.is/Kristinn Freyr Jörundsson

Ökumaður sem var á ferðinni í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum í gærmorgun endaði akstur sinn á ljósastaur. Þegar lögreglumenn komu á vettvang var bifreiðin á ljósastaurnum sem lá niðri. Hún var mikið skemmd og óökufær. Þurfti að fjarlægja hana af vettvangi með dráttarbíl.  

Ökumaðurinn slapp ómeiddur.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert