Víða næturfrost

Spáð er norðlægri átt, 5-13 m/s en lægir í dag. Víða léttskýjað en gengur í norðvestan 5-13 NA-til um hádegi með lítilsháttar rigningu fram eftir degi. Hægviðri og léttskýjað um allt land á morgun. Hiti 2 til 10 stig, mildast syðst, en víða næturfrost.

Á miðvikudag:

Hæg breytileg átt og víða léttskýjað. Hiti 3 til 10 stig, mildast S-lands, en víða næturfrost.

Á fimmtudag:
Norðanátt, víða 5-10 m/s og skýjað með köflum eða léttskýjað sunnan - og vestantil en norðvestlæg átt 8-13 og slydda eða rigning með köflum norðaustanlands. Hiti 2 til 10 stig, hlýjast SA-til.

Á föstudag:
Norðlæg átt, víða skýjað með köflum eða bjartviðri en stöku skúrir eða slydduél með norðurströndinni og dálítil rigning suðaustantil síðdegis. Hiti 2 til 10 stig.

Á laugardag:
Norðlæg átt skýjað og NA-lands, en austlægari og rigning með köflum syðst. Hiti 2 til 7 stig, mildast sunnantil.

Á sunnudag:
Vaxandi suðaustanátt með rigningu en lengst af bjartviðri um landi norðanvert. Hiti breytist lítið.

Á mánudag:
Líkur á hvassri austanátt með rigningu en þurrviðri norðan jökla. Hlýnar í veðri.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert