Ríkislögreglustjórinn í samráði við lögreglustjórann á Suðurlandi hefur ákveðið að virkja viðbragðsáætlun vegna eldgoss undir Mýrdalsjökli á óvissustigi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Almannavörnum.
Jarðskjálftahrina hófst um hádegisbilið 29. september og stendur enn yfir. Vísindaráð Almannavarna telur líklegt að hrinan stafi af kvikuhreyfingum í Kötlu, en enn hafa engin merki um gosóróa mælst. Segir í tilkynningunni að eftirfarandi atburðarrásir séu taldar líklegastar í framhaldinu:
Að framansögðu er varað við ferðum í og við jökulár sem renna frá Mýrdalsjökli. Sérstaklega má tiltaka Múlakvísl og Jökulsá á Sólheimasandi.
Óvissustig almannavarna þýðir að aukið eftirlit er haft með atburðarás sem á síðari stigum gæti leitt til þess að heilsu og öryggi fólks, umhverfis eða byggðar verði ógnað. Að lýsa yfir óvissustigi er hluti af verkferlum í skipulagi almannavarna til að tryggja formleg samskipti og upplýsingagjöf á milli viðbragðsaðila.