Árekstur varð nú um miðjan daginn á gatnamótum Hjallabrautar og Reykjavíkurvegs í Hafnarfirði. Engin alvarleg meiðsl urðu á fólki.
Samkvæmt upplýsingum frá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu var um að ræða árekstur tveggja bíla. Áreksturinn var nokkuð harður og fólkið úr bílunum sent til skoðunar á slysadeild en talið er að þau hafi sloppið með minniháttar meiðsl.