Fjórir meðlimir vélhjólagengisins Bad Breed MC í Svíþjóð, voru stöðvaðir við komu sína til landsins á föstudag.
Lögreglan á Suðurnesjum fór með fjórmenningana á lögreglustöðina á Suðurnesjum á meðan mál þeirra var til skoðunar.
Frétt mbl.is: Bad Breed í Garðabæ
Þeim var að því loknu birtur úrskurður Útlendingastofnunar um að þeim yrði ekki hleypt inn í landið og var því næst fylgt um borð í flug til Stokkhólms.