Bíll valt í Þrengslunum um níuleytið í morgun. Einn var í bílnum og var hann fluttur á slysadeild til aðhlynningar.
Að sögn lögreglunnar á Suðurlandi voru meiðslin minniháttar.
Slysið má rekja til slæmrar færðar, en snjókoma var á Hellisheiði í dag. Samkvæmt lögreglunni var bíllinn á sumardekkjum og vill hún benda ökumönnum á að vera með ökutæki sín vel útbúin.