Nokkur hópur fólks kom saman á Austurvelli í dag til að sýna samstöðu með 5 ára dreng sem norsk yfirvöld kölluðu eftir að yrði sendu þangað í fóstur. Boðað var til mótmælanna á Facebook og sagði í tilkynningu þeirra sem boðuðu til samstöðufundarins að þeir gerðu þá kröfu að innanríkisráðherra, ásamt þeim sem áhrif hefðu í þessu máli, beitti sér af fullum krafti fyrir því að drengurinn fengi úrlausn sinna mála hér á landi.
Íslenskur dómari hefur þegar staðfest dóm norskra stjórnvalda um að drengurinn skuli sendur til Noregs til vistunar næstu 13 árin og byggir þann dóm á Haag-samningnum.
„Það er hinsvegar verið að svipta drenginn þeim rétt á að þekkja fjölskyldu sína, einu samskiptin sem hann mun geta haft við fjölskylduna eru 2 heimsóknir frá móður sinni á ári í 2 tíma í senn undir eftirliti. Þetta er þungur dómur fyrir 5 ára dreng,“ sagði í tilkynningunni.