Úrskurðarnefnd fjarskipta- og póstmála hefur hafnað kröfu Útvarps Sögu um frestun réttaráhrifa ákvörðunar Póst- og fjarskiptastofnunar.
Með þeirri ákvörðun synjaði Póst- og fjarskiptastofnun umsókn Útvarps Sögu um úthlutun á aukatíðni fyrir höfuðborgarsvæðið og lagði fyrir stöðina að hætta notkun á tíðninni 102,1 MHz þar sem tímabundin heimild til prófana á tíðninni er löngu útrunnin, að því er kemur fram í tilkynningu.
Í forsendum úrskurðarnefndar kemur fram að hin kærða ákvörðun hafi ekki í för með sér að útsendingar kæranda muni stöðvast. Um óbreytta starfsemi verður að ræða frá því sem var áður en þetta mál hófst.
Póst- og fjarskiptastofnun getur því framfylgt ákvörðun sinni og gripið til viðeigandi aðgerða til þess að stöðva óheimila notkun á tíðninni 102,1 MHz. Málið mun síðan fá hefðbundna meðferð hjá úrskurðarnefndinni þar sem fjallað verður um efnishlið málsins.
Í tilkynningunni áréttar Póst- og fjarskiptastofnun að Útvarpi Sögu hafi staðið til boða að fá tíðnina 102,1 MHz gegn því að skila inn tíðninni 99,4 MHz og stendur það boð enn.