Slit hefur orðið í ljósleiðara Mílu milli Varmár í Mosfellsbæ og Grafarvogs. Greining á slitunum stendur yfir og mun viðgerð hefjast um leið og greining liggur fyrir.
Þetta staðfesti Sigurrós Jónsdóttir, upplýsingafulltrúi Mílu, í samtali við mbl.is. Hún sagði að viðgerð gæti tekið nokkra stund en ekki er ljóst hvers vegna slitið varð.