Bíll fór út af veginum vegna hálku í Kinninni í nágrenni Húsavíkur um tíuleytið í morgun. Ökumaðurinn slapp ómeiddur.
Mikil hálka er nú á vegum á þessu svæði að sögn lögreglunnar á Húsavík, sem hvetur ökumenn til að fara varlega þar sem hálkukaflar komi ökumönnum oft að óvörum í þessari hlýindatíð.