Vegir víðast hvar greiðfærir

mbl.is/Þórður Arnar Þórðarson

Greiðfært er á vegum á Suður- og Vesturlandi samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni en hálkublettir eru á nokkrum fjallvegum á Vestfjörðum og á veginum norður í Árneshrepp á Ströndum.

Greiðfært er að sama skapi á Norðvesturlandi en hálka eða hálkublettir á nokkrum leiðum á Norðausturlandi. Hálkublettir eru á nokkrum vegum á Austurlandi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert