Hluti stjórnsýslusviðs Kópavogsbæjar flutti frá Fannborg 2 að Digranesvegi 1 í dag. Þetta er fyrsti áfangi flutnings bæjarskrifstofa Kópavogs í nýtt húsnæði.
Sá hluti sem flytur núna eru starfsmenn á fjórðu hæð Fannborgar 2 og hluti fyrstu hæðar en aðrir starfsmenn flytja í vor og haust. Þjónustuver bæjarskrifstofa verður áfram í Fannborg 2 fram á vor.
Í tilkynningu frá Kópavogi kemur fram að búast megi við röskun á starfsemi stjórnsýslusviðs Kópavogsbæjar á morgun, föstudaginn 20. janúar, vegna flutninganna.