Einn var fluttur á slysadeild eftir að bíll fór út af Hafnarfjarðarvegi skammt frá Arnarnesbrú rétt fyrir klukkan ellefu í kvöld.
Að sögn slökkviliðsins á höfuðborgarsvæðinu fór einn bíll frá slökkviliðinu á vettvang.
Ekki er vitað nánar um tildrög slyssins.